top of page

UM GRÍMU ARKITEKTA

Gríma arkitektar hefur verið starfandi síðan í desember 2015 og byggir á grunni Studio Striks arkitekta sem hóf rekstur árið 2007. Eigandi Grímu arkitekta er Sigríður Ólafsdóttir arkitekt, FAÍ.

Hjá Grímu arkitektum er lögð áhersla á að hvert verkefni sé einstakt og taki mið af staðháttum, tilgangi og þörfum viðskiptavina. Verk stofunnar einkennast af vandaðri nálgun, nánu samstarfi við verkkaupa og virðingu fyrir landfræðilegu og sögulegu samhengi.

Við höfum víðtæka reynslu af hönnun fjölbreyttra mannvirkja og gerð skipulagstillagna, þar á meðal íbúðarhúsnæðis, hótela, atvinnuhúsnæðis, skóla, íþróttamannvirkja, hjúkrunarheimila, skrifstofa, verslana, menningarmiðstöðva, auk endurgerðar eldri bygginga.

Langflest verkefni okkar eru unnin samkvæmt BIM aðferðafræði. Sjálfbærni er lykilþáttur í hönnun okkar og við þekkjum vel BREEAM umhverfisvottunarkerfið.

Soti-20.jpg

STARFSFÓLK

Sigríður Ólafsdóttir

Arkitekt FAÍ & eigandi

Netfang: sigga@grimaark.is

Sími: 897-3760

Davíð K. Karlsson

Byggingafræðingur BFI

Netfang: david@grimaark.is

Sími: 694-3029

Wiktor Komorowski

Byggingafræðingur BFI

Netfang: wiktor@grimaark.is

Sími: 780-4711

Bergþór Atli Halldórsson

Byggingafræðinemi

Netfang: bergthor@grimaark.is

Sími: 772-3808

Ivana Lukic 

Byggingafræðingur BFI

Netfang: ivana@grimaark.is

Sími: 776-4689

Ágústa Sól Thors

Sérfræðingur

Netfang: agusta@grimaark.is

Sími: +46-072-447-1442

VIÐURKENNINGAR

2025      Fossvogsblettur 2a, leikskóli fyrir Reykjavíkurborg – 1. sæti í alútboðssamkeppni

2023      Skarfabakki, ný farþegamiðstöð fyrir Faxaflóahafnir – 1. verðlaun í alútboði hjá Brokkr Studio

2022      Reykjavík grænni byggð, íbúðir við Arnarbakka – hugmynd valin til útfærslu, í samst. við Tendra

2021      C40 samkeppni um uppbyggingu gömlu sementsverksmiðjunnar – 1. verðlaun

2018      Smiðjuholt í Reykjavík – tilnefnt til norrænna hönnunarverðlauna á sviði sjálfbærni

2018      Fjölnotaíþróttahús í Garðabæ, tillaga í alútboði – hæsta hönnunareinkunn

2018      Landsbankinn nýjar höfuðstöðvar – 2. Verðlaun í lokaðri samkeppni í samst. við A2F og Kreatívu

2010      Hjúkrunarheimili á Eskifirði – 2. verðlaun í opinni hönnunarsamkeppni, valið til útfærslu

2008      Íþróttahús HK í Fagralundi, tillaga í alútboði - hæsta hönnunareinkunn

2005      Lækjarskóli – tilnefning til Mies van der Rohe verðlauna

2005      Cults Academy, Aberdeen Skolandi – 1. verðlaun í lokaðri einkaframkvæmdarkeppni

2005      Fjölbrautarskólinn í Ármúla viðbygging – 1. verðlaun í lokaðri hönnunarsamkeppni

2004      Leikskóli og viðbygging við grunnskólann á Laugarvatni – 1. verðlaun í alútboði

2003      Gufubað við Laugarvatn – 1. verðlaun í lokaðri hönnunarsamkeppni

2000      Lækjarskóli, grunnskóli og íþróttahús/sundlaug – 1. verðlaun í opinni hönnunarsamkeppni

2000      Leikskólinn Hörðurvellir – 1. verðlaun í opinni hönnunarsamkeppni

1998      Barnaspítali Hringsins - athyglisverð tillaga

logo.png

LAUGAVEGUR 178

REYKJAVÍK

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page